- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Laufás kemur við sögu skömmu eftir að Ísland byggðist og þar hefur staðið kirkja frá fyrstu kristni. Í katólskum sið var hún helguð Pétri postula. Prestssetur hefur verið í Laufási frá fyrstu kristni og er enn. Síðasti presturinn sem bjó í gamla bænum, séra Þorvaður Þormar, flutti árið 1936 í nýtt prestssetur og þar bjuggu Laufássprestar fram til ársins 2000. Sú kirkja sem nú stendur í Laufási var byggð 1865. Meðal merkra gripa í eigu kirkjunnar er predikunarstóll sem ber ártalið 1698. Við austurgafl kirkjunnar stendur eitt elsta reynitré landsins frá 1855.
Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni en í elsta hluta gamla bæjarins sem nú stendur er talið að séu viðir allt frá 16. og 17. öld. Bærinn var endurbyggður af mikilli reisn í tíð séra Björns Halldórssonar sem sat staðinn árin 1853-1882. Laufásbærinn er stílhreinn burstabær, dæmigerður fyrir íslenska bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu stærri. Algengt var að tuttugu til þrjátíu manns væru til heimilis í Laufási, því margt vinnufólk þurfti til að nytja þessa gróðursælu kostajörð en henni fylgdu mikil hlunnindi.
Laufásbærinn er í dag búinn húsmunum og áhöldum líkast því sem tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Þrisvar sinnum á ári eru haldnir starfsdagar í Gamla bænum; Vorverk, Heyannir og Jólaannir. Það eru félagar úr Laufáshópnum sem sjá um að glæða bæinn lífi á starfsdögum og sýna handtök og handverk liðinna tíma.
Í gamla prestssetrinu sem er í eigu Minjasafnsins á Akureyri hefur verið rekin Gestastofa Laufáss frá sumrinu 2014. Þar er lögð áhersla á móttöku ferðamanna og gesta, meðal annars með fræðslu um sögu staðarins, náttúruna og nánasta umhverfi. Hægt er að fá kaffi og léttar veitingar og njóta útsýnisins eða líta í bók og blöð í bókahorninu. Þá er einnig starfrækt í Gestastofunni handverks- og minjagripaverslun þar sem gefur að líta fjölbreytt vöruúrval m.a. frá athafnafólki af svæðinu.
Upplýsingar um opnunartíma og verð er að finna á heimasíðu Minjasafnsins um Laufás.
Þjónustusími og bókanir fyrir hópa: 463 3196 eða 895 3172. Tölvupóstur: laufas@minjasafnid.is
Gamli bærinn Laufás er á Facebook
Staðarhaldari í Laufási er Sími: 895 3172, 463 3196 og 462 4162
Gamli bærinn í Laufási er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Minjasafnið á Akureyri hefur umsjón með gamla bænum og sér um rekstur hans.