- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Friðrik K. Þorsteinsson lauk í gær sinni 50. vertíð á grásleppu. Löngum hefur hann róið bát sínum Eyfjörð, en af þessu tilefni sló eiginkonan, Kristjana Hallgrímsdóttir, upp veislu á bryggjunni. Friðrik, eða Danni eins og hann er jafnan kallaður, hefur verið afar farsæll og gengið vel þessa hálfu öld. Á bryggjunni samfögnuðu nokkrir vinir og ættingjar, nutu veitinganna og sögðu sögur. Frímann Kristjánsson var mættur með myndavélina og meðf. eru nokkrar myndir Frímanns.