- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Álagningu fasteignagjalda 2020 er lokið og voru álagningarseðlar sendir í póst í síðustu viku. Einnig eru álagningarseðlar aðgengilegir á upplýsingasíðunni www.island.is undir mínar síður.
Allar álagningarprósentur eru óbreyttar en sorphirðubjöld hækka um 2.5%. Fasteignamat breytist lítið í heildina og hækka álögð gjöld samtals um rúm 2% milli ára. Nokkur breytileiki er þó eftir eignum, sumar eignir lækka smávegis en aðrar standa í stað eða hækka, og ræðst þróun gjalda af breytingu á fasteignamati.
Ekki eru sendir út greiðsluseðlar frekar en síðustu ár, en þeir sem hafa óskað eftir seðlum í póst síðustu ár fá þá áfram í pósti.