- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Lok kjörfundar fara eftir 89. grein laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000:
Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Atkvæðagreiðslu má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal þó slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur, sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma, eiga þó rétt á að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Grýtubakkahrepps