- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Í dag hefur Fiskistofa auglýst til úthlutunar byggðakvóta til skipa sem skráð eru í Grýtubakkahreppi. Í ár koma 37 þorskígildistonn til úthlutunar en sveitarstjórn gerði tillögu um úthlutunarreglu sem er óbreytt frá fyrra ári, lesa má um regluna í fundargerð.
Útgerðarmönnum sem áhuga hafa er bent á að ganga frá umsóknum á vef Fiskistofu, allar upplýsingar er þar að finna og er slóðin á auglýsingu Fiskistofu hér. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar.