Enn er nokkur aukning smita, einkum hér við Eyjafjörð. Íbúar eru hvattir til að fylgja útgefnum reglum í hvívetna, þannig sjáum við vonandi til lands, þó langt sé í að við getum vænst alveg venjulegs ástands.
Skólahald gengur bærilega hjá okkur ennþá og áhrif af hertum reglum minni en í stærri skólum. Heimsóknarbann er enn í gildi á Grenilundi.
Nokkur atriði til umhugsunar.
- Fylgist vel með upplýsingum um breytingar á reglum á covid.is og í fréttum.
- Sérstaklega er bent á að við skiptingu í sóttvarnarhólf í fyrirtækjum og stofnunum sé hugað að því að fólk sem deilir sama heimili sé ekki sett í sitt hvort sóttvarnarhólfið.
- Allir sem eru í færum eru beðnir að vísa erlendum íbúum á covid.is þar sem upplýsingar eru á mörgum tungumálum, t.d. pólsku (Polski). Einnig að uppfræða þá um breyttar reglur eftir því sem hægt er.
- Ekki hika við að fara í sýnatöku ef einkenna verður vart, allir fá sýnatöku sem þess óska.
Leggjumst á eitt höfum grímurnar klárar og virðum reglur.