- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri og Jón Örvar Bjarnason sérfærðingur, hjá Viðlagatryggingu Íslands (VTÍ ) komu í heimsókn á Grenivík í gær. Heimsóknin er liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ.
Fundað var með Þresti Friðfinnssyni sveitarstjóra og og Sigurði B. Þorsteinssyni umsjónarmanni veitna Grýtubakkahrepps og áttu fundarmenn góðar og markvissar samræður um vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélagsins. Einnig var farið yfir mikilvægi þess að skráð verðmæti mannvirkja sé uppfært reglulega til að tryggja að eignirnar séu vátryggðar að fullu ef vátryggingaratburður á sér stað. Einnig var rætt um mikilvægi samvinnu sveitarfélagsins og VTÍ til að stuðla að markvissri endurbyggingu sveitarfélagsins ef til tjónsatburðar kemur.
Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að íbúar séu meðvitaðir um hvort vátryggingavernd þeirra sé í lagi. Fram kom að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992). Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur. Allar fasteignir eru hins vegar skylduvátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.
Rétt er að benda íbúum á að fara reglulega yfir sín tryggingamál, ekki síst hvort verðmæti eigna sé rétt metið þannig að eignir séu ekki vantryggðar og fáist þá ekki bættar nema að hluta ef tjón verður.