- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Enn hefur covid herjað á samfélagið og nýjar reglur tóku gildi á miðnætti. Sundlaug og líkamsrækt hefur verið lokað, grunnskólinn kominn í páskafrí en leikskólinn heldur óbreyttri starfsemi. Reglurnar gilda til 3ja vikna, framhaldið ræðst af þróun smita.
10 manna hámark er á samkomum og því miður fara plön margra um páskana út um þúfur. Við verðum að leggjast á eitt og fara að reglum og kveða þessa bylgju niður strax í fæðingu.
Bólusetningar halda áfram og nú með vaxandi hraða, það gefur okkur von um að hlutir færist í venjulegra ástand þegar kemur lengra fram á.
Upplýsingar um nýjar reglur má finna hér og almennarupplýsingar um faraldurinn á www.covid.is.