- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Í sumar og og haust hefur verið unnið að endurnýjun leiksvæðis við Grenivíkurskóla. Í leiðinni var vatnsinntak í skólahúsið endurnýjað og drenlagnir endurbættar. Er það fyrirbyggjandi viðhald, enda húsið byggt um 1980.
Í dag var leiksvæðið formlega vígt og var mikil gleði í andlitum og almenn ánægja með framkvæmdina. Svæðið er hið glæsilegasta með litlum íþróttavelli með körfuspjöldum, fjölbreyttum leiktækjum og opnu svæði þar sem koma má fyrir hjóla/brettarömpum síðar. Hóll til að renna sér niður af var byggður upp efst á lóðinni, "Þorgeirshóll". Þá verður komið fyrir skrautgróðri á lóðinni innan um og á milli leiksvæðanna, vonandi strax á næsta ári.
Þorgeir skólastjóri flutti stutta tölu og þrír af nemendum fjórða bekkjar fluttu þakkir og lýstu ánægju með svæðið. Síðan klipptu börnin á borða og svæðið var formlega opnað.
Nokkrar myndir;