- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Jæja góða fólk
Það er gleðilegt frá því að segja að nú fer saman slökun vegna covid og lokið er við smíði pottanna okkar hér við sundlaugina á Grenivík. Með þessari verulegu uppfærslu má með sanni segja að aðstaðan hefur tekið stakkaskiptum fram á veginn frá því sem áður var. Ílátin nýju eru þrjú, heitur pottur 39°c, vaðlaug 37°c og kaldur pottur 7°c.
Laugin opnar fyrir almenning næstkomandi laugardag 12. desember. Skólabörnum er boðið í foropnun föstudag 11. des strax eftir að skóla lýkur.
Þessa opnunarhelgi verður laugin opin bæði laugardag og sunnudag frá kl. 10:00 - 18:00 og aðgangur í boði Grýtubakkahrepps.
Munum eitt. Covid kvikindið hefur ekki yfirgefið veröldina og þess vegna þurfa allir að sýna ábyrð varðandi sóttvarnir, grímunotkun og umgengni hvert við annað. Einnig treystum við á að aðsókn dreifist vel yfir þessa daga, en kannski þarf að tempra aðgang ef mjög margir koma á sama tíma.
Vöndum okkur, höfum gaman og verið velkomin.
Vetraropnun mun hljóða á þessa leið fyrst um sinn:
Mánudaga 15:30 – 18:30
Þriðjudaga 15:30 – 18:30
Miðvikudaga 15:30 – 18:30
Fimmtudaga 15:30 – 18:30
Föstudaga 15:30 - 18:30
Laugardaga 11:00 – 15:00
Sunnudaga 11:00 - 15:00
Opnun um jólin verður eftirfarandi:
23. þorláksmessa lokað
24. aðfangadagur lokað
25. jóladagur lokað
26. annar í jólum lokað
27. sunnudagur 11:00 - 15:00
28. mánudagur 15:30 – 18:30
29. þriðjudagur 15:30 – 18:30
30. miðvikudagur 15:30 – 18:30
31. gamlársdagur lokað
1. janúar 2021 föstudagur lokað
2. janúar tekur við vetraropnun