Á laugardaginn verður haldin snocrosskeppni á Grenivík. Búist er við mikilli þátttöku og fjölda áhorfenda enda má búast við fjöri og spennandi keppni. Keppnisbrautin verður á flatanum sunnan við Miðgarða, gengt bensínstöðinni og verður beint streymi frá keppninni.
Frekari upplýsingar um keppnina er að finna á myndinni sem fylgir hér með, en hér á eftir koma praktískar upplýsingar fyrir heimamenn og gesti:
- Keppnin hefst kl. 11:30 og stendur ca. til kl. 17:20.
- Miðgörðum verður lokað milli Lækjarvalla og Túngötu milli kl. 8:00 og 18:00 á laugardaginn.
- Vinsamlegast leggið ekki bílum, tækjum eða kerrum sunnan Miðgarða núna fram yfir keppnina.
- Sundlaugin verðu opin á laugardaginn kl. 11:00 til 19:00.
- Kontorinn veitingahús verður með tilboð og opinn á laugardaginn kl. 9:00 til 21:00.
- Komið verður með færanlegar snyrtingar sem verða opnar við keppnissvæðið.
- Því miður er snyrtingahúsið við Gömlu bryggju lokað nú um tíma vegna skemmda sem hlutust af óhappi þar.
- Íbúar eru hvattir til að fylgjast með og skemmta sér, en einnig beðnir að sýna hávaða og ónæði sem af keppninni hlýst þolinmæði.
- Sleðamenn eru einnig hvattir til að stilla hamagangi í hóf utan keppnissvæðis.
- Sleðamenn og aðrir eru sérstaklega beðnir að fara varlega kringum malargryfjuna suðaustan við keppnissvæðið, þar eru hættulegar brúnir.
Leggjumst öll á eitt til að allt fari vel og slysalaust fram.
Góða skemmtun!