Hleðslustöð endurnýjuð

Nú geta tveir bílar hlaðið í einu.
Nú geta tveir bílar hlaðið í einu.

Orkusalan hefur nú sett upp nýja hleðslustöð á Grenivík með tveim 22KW tenglum.  Gamla stoppustuð-stöðin hefur verið tekin niður.

Nýja stöðin er á sömu slóðum og hin eldri, á staur fyrir framan Grýtu, eða Jónsabúð.

Til að nýta sér stöðina þarf að hlaða niður E1 (eONE) appinu (séu menn ekki þegar með það virkt), skrá kreditkortanúmer inn í appið og síðan er QR kóði á þeim tengli sem nýta á, skannaður inn í appinu.