- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Björgunarsveitin Ægir sótti tvo erlenda ferðamenn út í Látur í dag. Höfðu þeir gengið í Látur en aðstæðir voru erfiðar og treystu þeir sér ekki til að ganga til baka.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er enn mikill snjór á Látraströnd og rétt að brýna fyrir ferðalöngum að kynna sér vel aðstæður áður en lagt er af stað.
Enn er eitthvað í að aðstæður verði ákjósanlegar til gönguferða um svæðið.