- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórn staðfesti ársreikning Grýtubakkahrepps fyrir árið 2019 við síðari umræðu 8. júní s.l.
Rekstur var í jafnvægi, rekstrarafgangur samstæðu var 7,1 mkr.
Fjárfesting á árinu var með minnsta móti, eða samtals 24 mkr. Stærsta einstaka fjárfestingin var í hjólaskóflu og er ekki annað hægt að segja en hún hafi nýst vel í vetur.
Ein íbúð var seld á árinu og langtímaskuldir lækkuðu töluvert. Eiginfjárhlutfall samstæðu var um áramótin 62,4%.
Horfur fyrir þetta ár eru eftir atvikum þokkalegar. Ekki er fyrirséð verulegt frávik frá áætlunum og samdráttur vegna Covid-19 kemur minna við hér en víðast annarsstaðar. Snjómokstur var þó margfaldur miðað við fyrri ár, en hann er að mestu unninn af þjónustumiðstöð og þyngir því reksturinn minna en ella.