- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.
Fundurinn verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík og er opinn öllum. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10.
Fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins. Því geta allir fylgst með honum, hvar sem þeir eru staddir á landinu.
Dagskrá:
„Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“
„Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“
Entur – connecting public transport across Norway.