- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Íþróttanefnd fullorðinna félagsmanna (ÍFF) innan HSÞ hvetur eldri félaga og aðra fullorðna á öllum aldri, sem búa á héraðssvæði HSÞ, til að stunda reglulega hreyfingu.
Þekkt staðreynd er að regluleg hreyfing og iðkun íþrótta hefur mjög góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu fólks. ÍFF hefur tekið saman lista yfir þá hreyfimöguleika sem eru í boði í þinni heimabyggð og hægt að finna sér hreyfingu við hæfi og áhuga.
Fyrir áhugasama um þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+ þá verður það haldið snemma sumars í Hveragerði 2017. Meira um það síðar.
Hreyfing er gulls ígildi - aldrei of seint að byrja!
Líkamsrækt í íþróttahúsinu: Ræktin er opin alla virka daga frá kl. 06:00-18:00. Hægt er að kaupa lykilkort til að komast í ræktina á öðrum tímum
Sund er góð alhliða hreyfing fyrir alla!
Mánud. – fim.d. kl. 15:00 – 18:00..... og laug.d. kl. 10:00 – 13:00.
Lokað á fös.d. og sun.d.
ATH – Fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri, er ókeypis bæði í ræktina og í sund.
„Ellan“ er hópur eldri borgara á Grenivík og nágrenni sem hittast 2x í viku í Grenilundi og eru oftast með góðar og léttar líkamsæfingar.
Formaður hópsins er Margrét Jóhannsdóttir í s: 463-3124