- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Nú ætlum við að fara að opna á heimsóknir á Grenilund aftur. Við förum rólega af stað en erum tilbúin að liðka meira til um leið og færi gefst. Aðstandendur eru beðnir að koma sér saman um það hver fer í heimsókn á Grenilund. Þið komið bara á Grenilund hringið dyrabjöllunni og starfsfólkið leiðbeinir ykkur.
Heimsóknarreglur eru eftirfarandi:
Alls ekki koma í heimsókn ef:
Þessar reglur taka gildi 19. nóvember 2020.
Sóttvarnarráðstafanir eru í sífelldri endurskoðun og leiðbeiningar geta breyst með stuttum fyrirvara.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með upplýsingum frá okkur í tölvupósti, á Facebook síðum og tilkynningum.
Ef smit vegna Covid19 aukast enn frekar munu reglur verða hertar. En við munum líka létta þessar reglum um leið og hægt er.
Við þökkum fyrir góðan skilning og ítrekum að þessar reglur eru settar til að vernda íbúa Grenilundar. Ekki hika við að hringja og fá upplýsingar um ykkar ættingja. Við viljum líka minna á að við eigum Ipad sem við getum aðstoðað íbúa með að tala við ættingja við hvetjum ættingja til þess að nýta sér það. Hafið bara samband og við leiðbeinum með það.
Bestu kveðjur fyrir hönd heimilis- og starfsfólk Grenilundar
Fjóla