- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Komin er út önnur gönguleiðabók Hermanns Gunnars Jónssonar um göngur hans á fjöll Gjögraskaga. Að þessu sinni um austurhluta skagans, og heitir bókin Kinnar- og Víknafjöll - með mínum augum.
Bókin er mikið myndskreitt og persónuleg eins og Hermanni er lagið og verður örugglega tekið fagnandi eins og fyrri bókinni.
Hermann Gunnar verður með útgáfuhóf á neðri hæð Grenivíkurskóla í kvöld, 31. maí, kl. 20:00 og eru allir velkomnir.
Við óskum Hermanni til hamingju með bókina.
Sýnishorn úr bóknnni má skoða hér.