- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Eftir veitingahúslausan vetur hefur nú verið opnað veitingahús á Grenivík á ný. Það er Sigurður Gauti Benediktsson sem hefur ásamt konu sinni Ingibjörgu Valdimarsdóttur, opnað Kontorinn veitingahús á ný.
Boðið er upp á fjölbreyttan matseðil og fjölskylduvænan. Pizzur eru í boði á föstudags- og laugardagskvöldum.
Fyrst um sinn verður opið virkadaga í hádeginu, klr. 11:30 til 13:30 en kl. 11:30 til 21:00 föstudaga og laugardaga.
Það er allur annar bæjarbragur að hafa veitngahús á ný og er þeim Sigga og Ingibjörgu óskað góðs gengis.
Frekari upplýsingar verður að finna á facebooksíðu og www.kontorinnrestaurant.com.