- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Konur víða um land lögðu niður störf í dag, einnig hér á Grenivík.
Sveitarstjórn styður baráttuna heils hugar og stendur við bakið á sínum konum. Halda þær launum í verkfallinu.
Áhrif voru veruleg á starfsemi stofnana sveitarfélagsins, mest á leikskólanum Krummafæti sem var lokaður í dag.
Tveir karlmenn stóðu vaktina í Grenivíkurskóla og voru með börn á yngsta stigi fram að hádegi, en að öðru leyti lagðist kennsla af í dag.
Ekki er hægt að stöðva starfsemi á Grenilundi frekar en aðra daga, þar var boðið upp á viðeigandi tertur með kaffinu. #ómissandi