- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Margt áhugavert í boði fyrir sál og líkama um páskana, sjá hér á eftir:
Páskar í Laufás- og Grenivíkursókn
Pálmasunnudagur kl. 11.00: Páskasunnudagaskóli í Grenivíkurkirkju.
Föstudagurinn langi: Föstuganga í Laufás: Gengið frá Grenivíkurkirkju kl. 12.30, frá Svalbarðskirkju kl. 11.00 og Végeirsstöðum í Fnjóskadal kl. 11.00. Björgunarsveitin vaktar gönguna. Súpa í Gestastofu í Laufási gegn vægu gjaldi. Tónleikar í Laufáskirkju kl. 14.30, Þór Sigurðsson og Petra Björk Pálsdóttir syngja og leika ljúfa tóna. Enginn aðgangseyrir, allir velkomnir. Orgeltónar og lestur úr Passíusálmum, á Grenilundi kl. 16.30
Páskadagur kl. 8.00 : Páskaguðsþjónusta í Grenivíkurkirkju
Páskaopnun sundlaugar:
18.apríl kl. 10:00-19:00 Fimmtudagur
19.apríl kl. 10:00-19:00 Föstudagur
20.apríl kl. 10:00-19:00 Laugardagur
21.apríl kl. 10:00-19:00 Sunnudagur
22.apríl kl. 10:00-19:00 Mánudagur
Kontorinn veitingahús
Verið velkomin, opið sem hér segir;
Skírdagur 12 til 21
Föstudagurinn langi 17 til 21
Laugardagur 12 til 21 og tónleikar kl 21:00
Sunnudagurinn lokað
Mánudagurinn lokað
Sjá nánar á www.facebook.com/Kontorinnrestaurant
Pöntunarsími er 5717188
Jónsabúð
Skírdag opið kl. 12 til 17
Laugardag opið kl. 12 til 17
Annan í páskum opið kl. 13 til 15
Lokað á Föstudaginn langa og Páskadag.
Milli Fjöru og Fjalla
Bændamarkaður í Fagrabæ, sjá nánar í auglýsingu hér neðst á síðunni.
Einnig á www.facebook.com/millifjoruogfjalla
Fornleifaskráning í Fjörðum, fyrirlestur
Laugardag 20. apríl kl. 16:00 í Grenivíkurskóla, litla sal.
Frumniðurstöður grunnrannsóknar í ósnortinni eyðibyggð
Byggðin í Fjörðum í Grýtubakkahreppi lagðist endanlega í eyði árið1944 þegar síðustu tvær fjölskyldurnar fluttu burt. Í Fjörðum hafa andstæðurnar tekist á. Þar hafa menn ýmist hokrað á litlum kotum eða rekið stórbú. Þar voru kostajarðir, grösugar engjar, fjörubeit góð og mikill reki. Á hinn bóginn var þar fannfergi á hörðum vetrum, erfiðar samgöngur og hafnleysa. Á þessu svæði hefur varðveist mjög heillegt menningarlandslag sem hefur lítið látið á sjá af mannavöldum en sjávarrof er virkt á svæðinu og ógnar minjum við ströndina. Sumarið 2018 hófst fornleifaskráning í Fjörðum sem styrkt var af fornminjasjóði og Grýtubakkahreppi og unnin var af Fornleifastofnun Íslands. Í erindi sínu mun Kristborg Þórsdóttir kynna frumniðurstöður skráningarinnar í Keflavík og Þorgeirsfirði og fjalla almennt um mikilvægi grunnrannsókna í eyðibyggðum til þess að auka skilning okkar á eðli og umfangi fornminja á landinu öllu.
Pólarhestar
Hestaferðir styttri og lengri, alla daga, boðið upp á kaffi og kökur á eftir.
Pólar Hestar, Grýtubakka II, s. 896 1879. Nánar á www.polarhestar.is
Kaldbaksferðir
Við flytjum þig á snjótroðara upp á Kaldbak, ferðir alla daga eftir bókunum. Síðan ferð þú niður á skíðum, bretti, snjóþotu, gangandi eða aftur með snjótroðaranum. Bókanir í síma 867-3770.
Nánar á www.kaldbaksferdir.com
Ferðafélagið Fjörðungur
Ferðafélagið Fjörðungur á þrjá skála í Fjörðum og á Látraströnd og eru þar tilvalin útivistarsvæði fyrir hestafólk, gönguhópa, skíðafólk eða sleðamenn. Hægt er að fá gistingu allt árið og pantanir eru á annab@mi.is. Nánar á www.ferdafjordungur.is
Gisting í boði
Grýtubakki 1 – www.facebook.com/grytubakki-1 eða í síma 846 9699
Lómatjörn gisting – www.facebook.com/lomatjorn-gisting
Vellir Grenivík – www.facebook.com/vellir-gistihus s. 898-0848 / 861-5508