- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórn hefur nú staðfest tillögu landbúnaðarnefndar um sleppingu sauðfjár og hrossa. Einmuna tíð í vetur og vor gerir kleift að opna fyrr en venja er, en eftirfarandi dagsetningar hafa verið ákveðnar:
Leyfilegt að sleppa sauðfé í ógirt heimalönd; 1. júní.
Leyfilegt að sleppa sauðfé á afrétt; 6. júní.
Leyfilegt að sleppa hrossum á afrétt; 1 júlí.
Landeigendur eru enn á ný hvattir til að huga að girðingum og tryggja eins og mögulegt er að búfé sé ekki á vegum. Við sjáum aukningu umferðar ferðamanna hér eins og annarsstaðar, og allir verða að leggjast á eitt að lágmarka þá slysahættu sem hlýst af búfé á vegum.
Sveitarstjóri