- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórn bókaði nokkuð harðorða gagnrýni á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundi sínum síðdegis. Til umfjöllunar var tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga og samþykkt aukalandsþings sambandsins frá 6. september s.l.
Bókunin er svohljóðandi;
"Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps fordæmir vinnubrögð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga í þessu máli. Sambandið á að vera málsvari sveitarfélaga skv. 2. grein samþykkta þess. Stjórn sambandsins hefur farið þvert gegn vilja og hagsmunum fjölmargra minni sveitarfélaga, hunsað þeirra sjónarmið og röksemdafærslu í aðdraganda tillögunnar og er að óbreyttu ekki lengur hægt að líta á hana sem málsvara allra sveitarfélaga. Við þær aðstæður hlýtur sveitarstjórn að íhuga í fullri alvöru hvort rétt sé að ganga úr sambandinu og mun fara vel yfir það á næstu vikum."