- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Miðvikudaginn 1. apríl 2020 kl 13-16.30 verður blásið til vefráðstefnu um úrgangsmál í breiðum skilningi. Er ráðstefnan lokahnykkurinn á störfum starfshóps Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem hafði til skoðunar framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi. Í vinnu hópsins var fjallað um úrgangsmál svæðiðsins og m.a. greindir úrgangsstraumar og tækifæri til að ná auknum árangri og hagræðingu í þessum viðamikla málaflokki. Á ráðstefnunni verða haldin fjölmörg áhugaverð erindi, m.a. um niðurstöður greiningar á úrgangsmálum á Norðurlandi, útflutning á sorpi, afsetningu lífræns úrgangs, úrgangsstjórnun hjá fyrirtækjum, líforkuver, smartvæðingu sorps, hringrásarhagkerfið, sjónarhorn sveitarfélags og fyrirtækis sem hafa náð árangri í úrgangsmálum o.fl. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mun opna ráðstefnuna.
Athugið að ráðstefnan fer fram á netinu - slóð á viðburðinn verður birt á viðburðasíðu ráðstefnunnar á facebook og á facbook síðum SSNV og SSNE.
Ráðstefnan er öllum opin.
Verkefnið er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og er stutt af sóknaráætlunum beggja landshluta.