- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Úthlutað hefur verið úr Viðspyrnusjóði Grýtubakkahrepps. Sjóðurinn var settur á stofn af hreppnum og Sænesi til stuðnings ferðaþjónustuaðilum í Grýtubakkahreppi, til að vinna gegn samdrætti af völdum Covid-19. Auglýst var eftir umsóknum þann 25. apríl s.l. og bárust 7 umsóknir frá aðilum í ferðaþjónustu.
Allir fengu þeir úthlutun skv. reglum um sjóðinn sem auglýstar voru hér.
Samtals var úthlutað styrkjum að upphæð kr. 2.490.654,- sem skiptast þannig milli umsækjenda:
Benedikt Steinar Sveinsson og Kristín Sigurðardóttir, kr. 259.872,-
Ásgeir í Höfða ehf. kr. 398.394,-
Pólarhestar ehf. kr. 500.000,-
Grenó ehf. kr. 300.101,-
Nollur ehf. kr. 500.000,-
Vellir Grenivík ehf. kr. 383.015,-
HestaNet ehf. kr. 149.272,-
Það er von sveitarstjórnar að þetta hjálpi til við að ferðaþjónustan í hreppnum komist heilu og höldnu í gegnum kreppuna. Umsækjendum er þakkað fyrir áhugann og þeim óskað velfarnaðar í sínum störfum.